Fyrirtækjaþjónusta fyrir Mötuneyti
Við sjáum um hádegisverðinn fyrir fleiri en 25 fyrirtæki og stofnanir
Viðskiptavinir okkar eru ýmist meðalstór og stór fyrirtæki sem treysta okkur fyrir því að elda góðan og hollan hádegismat fyrir starfsfólk.
Við komum með matinn til þín
Við sendum mat í hádeginu ásamt salatbar, súpu og brauði til fyrirtækja og mötuneyta.
Við þjónustum þitt fyrirtæki, á þinn hátt. Hvort sem þú ert með minna teymi eða stórt fyriræki getur þú leitað til okkar og fundið mataráskrift sem hentar þér.
Starfsfólk Krydd og Kavíar getur veitt þér ráðgjöf og teiknað upp lausn sniðna að þínum þörfum.
Við þjónustum fyrirtæki með mataráskrift
Krydd og Kavíar leitast eftir því að koma til móts við viðskiptavini og því kemur maturinn ýmist eldaður eða tilbúinn til eldunar á staðnum, eftir þörfum hvers viðskiptavinar.
Ef óskað er eftir því getum við einnig útvegað starfsmann í hádeginu sem sér um framreiðslu og frágang.