fbpx Skip to main content

Kælilausnir- og þjónusta fyrir matvælaframleiðslu og verslanir

Metnaður í matargerð

Við leggjum mikinn metnað í að hafa matinn eins ljúffengan og góðan eins og hægt er. Ein besta leiðin til þess er að nota gæða hráefni og elda allan mat frá grunni.

Við erum líklega með eina bestu aðstöðu landsins til að elda góðan og hollan mat og reynslumikið starfsfólk sem hefur metnað til að skila hádegisverðinum í fullum gæðum til starfólks þíns fyrirtækins.

Góður hádegisverður = Góð starfsánægja

Við vitum að ánægja með hádegismatinn skiptir miklum máli fyrir hvern vinnustað og þess vegna er allt unnið frá grunni hjá okkur til að tryggja að maturinn sé ljúffengur. Fjölbreytni er líka mikilvæg og við erum með yfir 300 uppskriftir þannig að þú fáir ekki leið á matnum. Það er engin hætta á að þú vitir hvaða vikudagur er út frá hádegismatnum okkar.

Allt eldað frá grunni

Við fáum allt hráefni eins ferskt og kostur er og vinnum allan mat frá grunni. Kaupum engin unnin eða háfunnin matvæli.

Við bökum öll okkar brauð úr gæða hráefnum og þú færð þau nýbökuð úr steinofninum okkar á hverjum degi.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina!

Hafðu samband og við finnum lausn sem hentar þér.